föstudagur, 7. september 2007

Sýni

Taktu tvær töflur og vatnsgreiddu þér, hugsaðu um eitthvað fallegt og horfðu...



Meira?

Laugardagurinn.

mánudagur, 3. september 2007

Hátíðleg skilaboð

Nú eru 5 dagar í Endurfundina og tími til að huga að hreinum sokkum og soðni brók.

Bekkjarpartý eru sem hér segir:
NÞ bekknum er boðið til Bjarna Más á Strandvegi 12 í Garðabæ klukkan 19:00.
!!!Uppfært!!!
NA bekknum er boðið til Hrefnu Lindar á Rekagranda 5 í vesturbæ klukkan 19:00.
F bekknum er boðið til Kötu í Skaftahlíð 33 klukkan 19:00.
FÞ bekknum er boðið til Kela í Andrésbrunni 3 (ekki Andrésarbrunnur) í Grafarholti klukkan 19:00.
!!!Uppfært!!!
4T bekknum er boðið til Selmu í Hraunbæ 109 íbúð 303 á þriðju hæð klukkan 19:00

Við vitum að þú átt myndir! Hafðu samband við Ölfu alfa[hjá]ennemm.is (þurfa ekki að vera stafrænar)

mánudagur, 20. ágúst 2007

Bekkjarpartý

Tæpar þrjár vikur eru í endurfundina og stemningin er mjög góð. Tveir vaskir aðilar hafa stigið fram og boðið ástkærum bekknum sínum á sinn heimavöll fyrir fögnuðinn.



NÞ bekknum er boðið til Bjarna Más á Strandvegi 12 í Garðabæ klukkan 19:00.
NA bekknum er boðið til Hrefnu Lindar á Rekagranda 5 í vesturbæ klukkan 19:30.

Það stendur greinilega ekki á náttúrufræði fólki. Hvernig er með þetta tungumála og félagsfræðilið?

ps. Óskum eftir myndum frá Kvennó árunum. Talið við Ölfu alfa[a]ennemm.is

pps. Vitið þið um fleiri vefsíður Kvennskælinga? Komment.

fimmtudagur, 9. ágúst 2007

Endurfundir 2007

Í tilefni af 5 ára útskriftar afmæli okkar boðum við til endurfunda. Endurfundirnir verða þann 8. september í félagsheimili Húnvetningafélagsins, Húnabúð, í Skeifunni 11. Skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 21:30 og því tilvalið fyrir bekkina að koma saman áður en herlegheitin hefjast. Mælst er til þess að þessi vefsíða sé nýtt til að koma á milli boðum um slíkar samkomur. Klukkan 22:00 hefjast skemmtiatriði en að þeim loknum tekur við skífuþeytirinn knái DJ Don't look back eða Lítt'ei aftur, en hann er fjarskyldur ættingi Ernesto af pizzastaðnum La Perla. Skemmtunin stendur til klukkan 02:00 og verður á staðnum bar þar sem strákarnir af Dinos hafa verið fluttir inn til að veita skælbrosandi afgreiðslu. Einnig er fólki frjálst að koma með sínar eigin veigar. Aðgangseyrir eru 1000 krónur og er fólk vinsamlega beðið um að mæta með reiðufé. Makar velkomnir.


Ef þú liggur á ljósmyndum frá Kvennó árunum, svo ekki sé minnst á útskriftarferðina, á stafrænu formi eða á pappír, ertu
vinsamlega beðinn um að hafa samband við Ölfu alfa(hjá)ennemm.is.

Ef upp koma spurningar setjið þær þá í kommentin eða ef lífið liggur við sláið á þráðinn til Magga í síma 6957686.

Vonumst til að sjá alla í rífandi nostalgíu gír.

þriðjudagur, 7. ágúst 2007

5 ára endurfundir

Nýr staður og ný dagsetning.

Nánari upplýsingar síðar.