Í tilefni af 5 ára útskriftar afmæli okkar boðum við til endurfunda. Endurfundirnir verða þann 8. september í félagsheimili Húnvetningafélagsins, Húnabúð, í Skeifunni 11. Skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 21:30 og því tilvalið fyrir bekkina að koma saman áður en herlegheitin hefjast. Mælst er til þess að þessi vefsíða sé nýtt til að koma á milli boðum um slíkar samkomur. Klukkan 22:00 hefjast skemmtiatriði en að þeim loknum tekur við skífuþeytirinn knái DJ Don't look back eða Lítt'ei aftur, en hann er fjarskyldur ættingi Ernesto af pizzastaðnum La Perla. Skemmtunin stendur til klukkan 02:00 og verður á staðnum bar þar sem strákarnir af Dinos hafa verið fluttir inn til að veita skælbrosandi afgreiðslu. Einnig er fólki frjálst að koma með sínar eigin veigar. Aðgangseyrir eru 1000 krónur og er fólk vinsamlega beðið um að mæta með reiðufé. Makar velkomnir.

Ef þú liggur á ljósmyndum frá Kvennó árunum, svo ekki sé minnst á útskriftarferðina, á stafrænu formi eða á pappír, ertu
vinsamlega beðinn um að hafa samband við Ölfu alfa(hjá)ennemm.is.
Ef upp koma spurningar setjið þær þá í kommentin eða ef lífið liggur við sláið á þráðinn til Magga í síma 6957686.
Vonumst til að sjá alla í rífandi nostalgíu gír.
24 ummæli:
Ok..... einhver verður að byrja að commenta! Ég mæti 8. sept!... og þið hin???
Mæti!
Ólafur Jónas mætir með góða skapið 8. sept það er á hreinu!!!!
Ég mæti:-)
Karin
Mæti pottþétt!!!
Jæja nú er komið að því að rifja upp gamla góða tíma.
Áður en við höldum í salinn þá verðum við í NÞ-bekknum að halda bekkjarpartý.... það er algjört möst!!!
Hver býður sig fram?? Ekki væri slæmt ef við gætum grillað saman og jafnvel tekið strætó á ballið (eins og sumir gerðu á fyrsta busaballinu).
Ég get því miður ekki haldi partý-ið því ég bý í 45 fm2 en í staðinn lofa ég að koma með G&T.
Kveðja Dóri Úlrix
Sælt veri fólkið frábært framtak! Að skjálfsögðu mætir Boggan ekki að syrja að því. Hvernig er einhver í NA til í að halda partý?
Við mætum. Er ekki stemning fyrir bekkjarpartýi í NB??
Fullu stelpurnar í NB ;)
Snilldarframtak;)
Ég og minn kall mætum ress und kát!
Við verðum að vinna í þessu með partýið Bogga;)
Frábært framtak. Hlakka til að sjá ykkur öll. Ég get haldið partý út á granda fyrir NA bekkinn
kv
Hrefna
Þetta hljómar vel......
kveðja Grétar Sigfinnur
Glæsilegt! Verðum að halda partý
4-T! Tékkið á síðunni okkar sem Karin var svo mikill snillingur að gera blog.central.is/fjordite :)
Inga Huld
Tékk
Hæbbs allir.
Ég hef hug á að mæta.
Hvað segja FÞ-arar annars um bekkjarteiti? Þau voru ófá haldin á Tjarnarstígnum hjá Barböru. Geimið hjá Inda í Kópavoginum fyrir seinasta Eplaballið var líka gott. Rútuferðin er eftirminnileg.
Við þurfum alveg endilega að fara í rútu. Og sleik!
Ég verd á stadnum í fullu fjori:) Hlakka til ad sja ykkur oll...
Kata
ég mæti eldhress..
Hjalti segir, Ætli maður láti ekki bara sjá sig.
4NÞ!!!!!!!
www.gamlibekkurinn.blogspot.com
Mugenhausen fjölskyldan snýr aftur.....
PS: furðuleg bloggsíða þetta nýja er neðst!!!
Frábært framtak, ég mæti!
Kv. Arnbjörg
Halló halló!!
Ég mæti galvaskur 8.sept. Svo skemmtilega vill til að við Bjarni Már erum að fara í veiði (ó já við erum harðir) þessa vikuna og komum einmitt heim 8.sept
Ætla jafnvel að skoða með teiti heima hjá mér fyrir okkur turtildúfurnar í FÞ...en þá er líka eins gott að það mæti fleiri en þrír ;)
Gaman að koma því hér inn að hann Indi yndi er orðinn stoltur faðir og býr í Kóngsins Köbenhavn. Þannig að því miður kemur hann varla til með að mæta...nema hann sé á klakanum á þessum tíma að sjálfsögðu.
Þangað til síðar,
Keli
Ps.Klárlega eitt af framtaki aldarinnar hér á ferð...og Maggi þú veist manna best að það verður engin helvítis rúta...heldur langferðabíll!!
jæja mikið rosalega líst mér vel á þetta framtak;) Komin tími til að sjá alla aftur eftir 5 ára fjarveru.
En hvernig er þetta með 4F, það eru nú alveg nokkrar erlendis...Kristín Jóns, Rut, Dröfn, Íris, Eva...Kristín og Rut verða allaveganna ekki á landinu á þessum tíma, veit ekki með hinar.
En við þurfum að rífa stemmninguna upp í 4F og halda ærlegt partý, ég get því miður ekki boðið mig fram þar sem ég er flutt utan höfuðborgarasvæðisins...ekki nema hópurinn sé til í rútuferð:)
kv. Elín Thelma
Ég mæti hress og kát. Hlakka mikið til að hitta alla aftur. Frábært að þú ætlir að halda partý fyrir okkur Keli(ef eittvhað klikkar þá get ég líka haldið það)
Bless og hittumst hress.
Kveðja Camilla
Mæti!
Já og ég mæti líka.
Ég mæti og hlakka mikið til:-)
Kveðja
Kristín Helga
Skrifa ummæli